06. mars 2009 klukkan 13:25
Eimujeppinn
08. febrúar 2008 klukkan 13:13
Vegna mjög slæmrar spáar á hálendinu um helgina höfum við ákveðið að fresta Eimujeppaferðinni Nánar auglýst seinna......
Eimujeppinn
04. febrúar 2008 klukkan 09:31
Nú blótum við Þorrann....
Hér er birtur skráningarlistinn í ferðina okkar inn i Sultarfit næstu helgi.
Brottför frá Olís Rauðavatni klukkan 18.00
Gist verður í tvær nætur í Sultarfit. Bíltúr tekinn á laugardaginn og svo verður sameiginlegur Þorramatur að hætti Eimujeppa. Einnig verður áframhaldandi vetrarstarf ákveðið.
Aðeins örfá pláss eftir í skálanum. Láttu þig ekki vanta í þessa ferð.
Skráðu þig núna imv@eimskip.is
Björgvin og Sigga
Björn Smári + 1
Jón Sigfússon + 2
Íris Mjöll og Magnús
Sveinar + 1
Ragnar Páll + 1
Orri Örvars + 1
Bjarni + 1
Eimujeppinn
22. janúar 2008 klukkan 16:27
Sælt veri fólkið
Nú hafa Eimujeppar ákveðið að skella sér saman í ferð
Helgina 8-10. febrúar
Brottför verður föstudagskvöldið klukkan 18.00 frá Olís Rauðavatni
Við ætlum í skálann Sultarfit sem er staðsettur austan Stóru láxár, undir Fitjaási, norðan af langöldu.
Skálinn er mjög góður.
Aðstaðan þarna er mjög fín. Þar er rennandi vatn, salerni og gaseldavél.
Gistirými er fyrir u.þ.b 25 manns.
GPS í sultarfit er 6419770-1939409
Skráning er hafin nú þegar og komast aðeins 25 manns með í þessa ferð.
Fyrstir koma, fyrstir fá.
Láttu þig ekki vanta og skráðu þig í hvelli hjá
imv@eimskip.is eða þá í síma 525-7951
Eimujeppinn
26. desember 2007 klukkan 13:57
Óska öllum félagsmönnum og fjölskyldum þeirra gleðilegra jóla og farsældar á komandi ferðaári. Með von um að ferðirnar verði margar og góðar
Eimujeppinn
08. október 2007 klukkan 13:06
Sælt veri fólkið. Nu er alveg óralangt síðan við Eimujeppar blogguðum síðast.

Sennilega hefur það eitthvað að gera með, hversu allt Eimufólkið er upptekið. Mikið að gera hjá Eimskip eitthvað þessa dagana.....já og eins og alla hina dagana líka

Nú er veturkonungur að ganga í garð og ekki er ég frá því að menn og konur séu farin að ditta að bílunum sínum fyrir veturinn.Skella blöðrunum undir bílinn,smyrja ventlana,læsingarnar,brauðið og finna loftmælirinn,gramsa upp kaðalinn,svefnpokann,hitabrúsann,þvottapokann,bakpokann já og plastpokann. Velja sér nesti og nýja skó fyrir veturinn. Koma sér í trukkagírinn og farin að setja valinkunna skála á stefnuskrána fyrir veturinn. Dusta rykið af Gps tækinu og er ég viss um að sumir menn eru farnir að æfa röddina í talstöðinni....over and out.
Undirrituð er búin að fara eina ferð og fékk ég bara sýnishorn af öllum veðrum i þeirri ferð og má segja að ég sé til í allt núna.
Eimujeppar ætla að fara að leggja drög að vetrinum mjög fljótlega og verður það alveg öruggt að enginn ætti að verða svikinn af þeim ferðum.
Allavegana langaði mig til að fá að heyra frá ykkur í commentunum hér að neðan hvernig stemmarinn er hjá ykkur fyrir vetrinum.
Kveðja
Íris Mjöll
Eimujeppinn
10. maí 2007 klukkan 15:14
Kæru Eimujeppar
Nú hef ég heyrt útundan mér stemmingu fyrir útilegu í sumar ...sem við köllum nokkurskonar Sumarslútt Eimujeppa
Mikið væri gaman að heyra í félagmönnum varðandi þann fagnað, hvar,hvert og hvernig menn óska sér að hafa þetta.
Eimujeppaskipulagningarmennirnir (hvað eru mörg þ í því) ætla að hittast og fara svo yfir hugmyndir ykkar varðandi nánari staðsetningu á slúttinu.
Nú er ekkert annað en að fara að grafa upp svefnpokana,ná í grillið í geymsluna,skafa mold síðustu ára af tjaldhælunum og finna sér einhvern spennandi stað til að dvelja á eina helgi.
Með von um góð viðbrögð og gott hugmyndaflug Eimujeppamanna.
Látið endilega hugmyndir ykkar í ljós hér fyrir neðan í athugasemdunum.
Kveðja Íris Mjöll sem vill fara í útilegu á fjöll.....
Eimujeppinn
25. apríl 2007 klukkan 15:50
Eimujeppinn
20. mars 2007 klukkan 11:10
Eimujeppar óska eftir sjálfboðaliðum sem kunna að yrkja
Eimujeppar vilja búa sér til lag, sem á eftir að slá í gegn.
Þið sem kunnið að yrkja endilega sendið okkur flott ljóð.
Við eigum svo mikið af fjölhæfu fólki í þessum félagsskap.
Þegar ljóðið er komið er ég alveg sannfærð um að Eimujeppar eiga einnig góðan lagahöfund sem er í leynum.....gítarleikararnir okkar kláru

Hvetjum allar konur og karla til að skella sér í listræna gírinn og vonumst til að sem flestir fái andann(þá meina ég sko ekki vínandann) yfir sig.
Trúnaði er heitið við yrkjendur ef óskað er eftir.
Hægt er að senda á imv@eimskip.is-bk@eimskip.is-bss@eimskip.is
Við bíðum spennt eftir viðbrögðum.
Ljóðin munu svo birtast hér á síðunni og fáið þið félagsmenn að kjósa og velja hið eina rétta ljóð. Lagið kemur svo fljótlega upp úr því.
Eimujeppinn
16. mars 2007 klukkan 15:11
Eimujeppinn